Upplýsingar um aðgengi

Volkswagen stendur fyrir framsækin farartæki framtíðarinnar. Með sama hætti og bíllinn fól í sér samgöngubyltingu á sínum tíma hefur internetið umbylt því hvernig við skiptumst á upplýsingum. Markmið okkar er að allir njóti óhindraðs aðgangs að þessari tækni – og geti nýtt sér upplýsingaframboð okkar á sínum forsendum.
Vefsíður og forrit á vegum Volkswagen eiga því að vera í senn aðgengileg og nothæf fyrir alla. Til að tryggja að svo sé nýtum við nýjustu þekkingu úr rannsóknum og þróun sem tengist aðgengi. Við hönnun á vefsíðum og forritum okkar fylgjum við ráðleggingum og fyrirmælum World Wide Web Consortium (skammstafað: W3C). Það er staðall sem gildir og er viðurkenndur á alþjóðavísu og við höfum ávallt að leiðarljósi við framþróun þjónustu okkar. Staðallinn „Web Content Accessibility Guidelines“ (skammstafað: WCAG) sem liggur nú fyrir í útgáfu 2.1 er stöðugt lagaður að nýjum kröfum og metur stöðu samræmis við staðalinn samkvæmt þrenns konar forgangi: A, AA og AAA. Efni vefsíða og forrita okkar er með óhindruðu aðgengi að því marki að það á að samræmast öðrum forgangi (AA).

Við bjóðum upp á eftirfarandi þjónustur:

Vefsíða Volkswagen

Á vefsíðu Volkswagen er að finna ítarlegar upplýsingar um fjölbreytt úrval bíla frá okkur. Þar getur þú útfært draumabílinn þinn eftir þínu höfði og leitað markvisst að nýjum og notuðum bílum sem eru í boði og gengið frá kaupum á þeim á netinu. Einnig standa þér til boða frekari eiginleikar eins og netkaupleiga eða netfjármögnun á völdum bíl.

Volkswagen ID – nýskráning/innskráning

Volkswagen ID er lykill þinn að stafrænum heimi Volkswagen. Þegar þú ert búin(n) að skrá þig og færa inn upplýsingar um þig getur þú notað allar stafrænar þjónustur Volkswagen með einni innskráningu.

myVolkswagen

myVolkswagen er svæðið þitt fyrir notandaupplýsingar og umsjón með bílum á markaðsvefsíðum Volkswagen. Þar er boðið upp á ýmsa eiginleika til að sýna og hafa umsjón með eigin bílum, upplýsingar um valinn bíl, stillingar fyrir tengiþjónustu, yfirlit yfir stafrænar vörur, þjónustuyfirlit og margt fleira.

„Self Service“

„Self Service“ (CIC-vefsíðan) er fyrsti staðurinn sem þú skalt fara á ef þú lendir í vandræðum með netþjónusturnar þínar. Þar er að finna svör við algengum spurningum sem snúa að netþjónustunum. Þar er einnig hægt að hafa samband við okkur, ýmist símleiðis eða með samskiptaeyðublaði.

Pre-Delivery Enrollment (PDE)

Pre-Delivery Enrollment (PDE) er þjónusta á vegum Volkswagen AG sem er ætluð fyrir þig ef þú hefur pantað einn eða fleiri (nýja eða notaða) bíla frá Volkswagen sem geta tengst internetinu og styðja netþjónustur Volkswagen (VW Connect, We Connect eða Car-Net, allt eftir bíl). Til þess að geta notað netþjónusturnar þarftu að stofna Volkswagen ID-aðgang og skrá þig fyrir netþjónustunum með honum. Með aðganginum er á tilteknum markaðssvæðum einnig hægt að skrá sig á myVolkswagen þar sem meðal annars er hægt að fylgjast með framleiðslu- og afhendingarstöðu tiltekinna nýrra bíla. PDE aðstoðar þig við nýskráningu fyrir Volkswagen ID, myVolkswagen og netþjónustunum (VW Connect, We Connect eða Car-Net, allt eftir bíl) með því að senda þér boð í tölvupósti með tenglum í skráningareyðublöðin fyrir þjónusturnar á netinu þar sem þegar er búið að færa inn upplýsingar um þig og bílinn þinn.
PDE aðstoðar þig jafnframt við að ganga frá skráningu fyrir valfrjálsan We Charge-hleðslusamning.

Volkswagen-appið

Volkswagen-appið er stafrænn förunautur fyrir Volkswagen-bílinn þinn. Með því er hægt að nota netþjónustur, óháð því hvaða bílgerð þú ekur og með hvernig drifi sem og því hvort þú ert með VW Connect, We Connect eða Car-Net-samning.
Með Volkswagen-appinu getur þú sem aðalnotandi t.d. fylgst með því hversu langt Volkswagen-bíllinn þinn kemst á hleðslunni, stillt á þægilegt hitastig fyrir fram, fundið bensínstöðvar og hleðslustöðvar og margt fleira.

Volkswagen ID-notandasíðan

Volkswagen ID-svæðið þitt til að vista persónuupplýsingar þínar og hafa umsjón með samþykkjum á borð við yfirlýsingu um samþykki vegna markaðssetningar eða samþykkjum fyrir bílinn, til dæmis fyrir uppfærslur í gegnum netið eða hraðræsingu upplýsinga- og afþreyingarkerfisins.

Vehicle Activation Service (VAS)

VAS er kerfi sem er að fullu samþætt viðkomandi framenda (Volkswagen-appinu og myVolkswagen) og sér um að tengja Volkswagen ID-aðganginn þinn við tiltekinn bíl. Helstu hlutar þessa ferlis eru: upplýsingar um notanda færðar inn, tengiþjónusta pöntuð, innskráning í viðkomandi bíl og auðkenning viðskiptavinar með IDNow AutoIdent-ferlinu.

Svona getur þú notað þjónustur okkar án aðgengishindrana

Samkvæmt lögum um óhindrað aðgengi fatlaðs fólks ber okkur að útfæra þjónustur okkar, sem fela í sér svokallaða þjónustu á sviði rafrænnar verslunar, með þeim hætti að óhindrað aðgengi sé tryggt. Það þýðir að einkum þarf að útfæra viðeigandi efni á borð við texta, myndir og tiltekna eiginleika á vefsíðum og í forritum okkar hjá Volkswagen þannig að það sé skynjanlegt, nothæft, skiljanlegt og traust. Við bjóðum þess vegna meðal annars upp á eftirfarandi eiginleika (flokkaða eftir þjónustum):

Vefsíða Volkswagen

Volkswagen ID – nýskráning/innskráning

myVolkswagen

„Self Service“

Pre-Delivery Enrollment (PDE)

1. Skynjanleiki
Við tryggjum að allar helstu upplýsingar séu skynjanlegar og aðgengilegar með skýrum og greinilegum hætti fyrir alla notendur:

2. Nothæfi
Vefsíður og forrit Volkswagen eru hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að nota alla eiginleika þeirra vandræðalaust:

3. Skiljanleiki
Efnið á vefsíðum og í forritum Volkswagen er útfært með það fyrir augum að allir notendur eigi auðvelt með að skilja það, óháð færni hvers og eins:

4. Traustleiki
Vefsíður og forrit Volkswagen virka áreiðanlega í mismunandi tækjum og vöfrum og styðja margs konar aðgengistækni:

5. Útskýring á þjónustum þriðju aðila
Fyrir þjónustu okkar notum við að hluta til þjónustur þriðju aðila. Hér er útskýrt hvernig nota má þær án aðgengishindrana: Rekstur þessarar þjónustu heyrir ekki beint undir ábyrgðarsvið okkar. Við höfum engin áhrif á hönnun og útfærslu aðgengis hjá þessum ytri þjónustuveitendum. Við tökum enga ábyrgð á aðgengi að efni, eiginleikum eða notendaviðmóti í þessari ytri þjónustu.
Upplýsingar um aðgengi að þessari þjónustu þriðju aðila er að finna í viðkomandi aðgengisyfirlýsingum á vefsíðum þjónustuveitendanna.

Volkswagen-appið

1. Skynjanleiki
Við tryggjum að allar helstu upplýsingar séu skynjanlegar og aðgengilegar með skýrum og greinilegum hætti fyrir alla notendur:

2. Nothæfi
Vefsíður og forrit Volkswagen eru hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að nota alla eiginleika þeirra vandræðalaust:

3. Skiljanleiki
Efnið á vefsíðum og í forritum Volkswagen er útfært með það fyrir augum að allir notendur eigi auðvelt með að skilja það, óháð færni hvers og eins:

4. Traustleiki
Vefsíður og forrit Volkswagen virka áreiðanlega í mismunandi tækjum og vöfrum og styðja margs konar aðgengistækni:

5. Útskýring á þjónustum þriðju aðila
Fyrir þjónustu okkar notum við að hluta til þjónustur þriðju aðila. Hér er útskýrt hvernig nota má þær án aðgengishindrana:
- Google Maps
- Apple Maps
- Volkswagen Group Charging GmbH (Elli)

Rekstur þessarar þjónustu heyrir ekki beint undir ábyrgðarsvið okkar. Við höfum engin áhrif á hönnun og útfærslu aðgengis hjá þessum ytri þjónustuveitendum. Við tökum enga ábyrgð á aðgengi að efni, eiginleikum eða notendaviðmóti í þessari ytri þjónustu.
Upplýsingar um aðgengi að þessari þjónustu þriðju aðila er að finna í viðkomandi aðgengisyfirlýsingum á vefsíðum þjónustuveitendanna.

Volkswagen ID-notandasíðan

1. Skynjanleiki
Við tryggjum að allar helstu upplýsingar séu skynjanlegar og aðgengilegar með skýrum og greinilegum hætti fyrir alla notendur:

2. Nothæfi
Vefsíður og forrit Volkswagen eru hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að nota alla eiginleika þeirra vandræðalaust:

3. Skiljanleiki
Efnið á vefsíðum og í forritum Volkswagen er útfært með það fyrir augum að allir notendur eigi auðvelt með að skilja það, óháð færni hvers og eins:

4. Traustleiki
Vefsíður og forrit Volkswagen virka áreiðanlega í mismunandi tækjum og vöfrum og styðja margs konar aðgengistækni:

Vehicle Activation Service (VAS)

1. Skynjanleiki
Við tryggjum að allar helstu upplýsingar séu skynjanlegar og aðgengilegar með skýrum og greinilegum hætti fyrir alla notendur:

2. Nothæfi
Vefsíður og forrit Volkswagen eru hönnuð með það fyrir augum að hægt sé að nota alla eiginleika þeirra vandræðalaust:

3. Skiljanleiki
Efnið á vefsíðum og í forritum Volkswagen er útfært með það fyrir augum að allir notendur eigi auðvelt með að skilja það, óháð færni hvers og eins:

4. Traustleiki
Vefsíður og forrit Volkswagen virka áreiðanlega í mismunandi tækjum og vöfrum og styðja margs konar aðgengistækni:

Þar til bært markaðseftirlitsyfirvald

Þar til bært markaðseftirlitsyfirvald fyrir mál sem snúa að því hvort kröfur um aðgengi fatlaðs fólks eru uppfylltar er „Marktüberwachungsstelle der Länder für die Barrierefreiheit von Produkten und Dienstleistungen“ með aðsetur í Magdeburg í sambandslandinu Sachsen-Anhalt í Þýskalandi.

Samskiptaleiðir

Hjálpaðu okkur að bæta aðgengi - Volkswagen vinnur stöðugt að því að bæta svæði á vefsíðum og í forritum okkar. Láttu okkur endilega vita ef þú rekst á aðgengishindranir við notkun þeirra.
Ertu með spurningar eða ábendingar um hvernig bæta má aðgengi í þjónustu okkar? Hafðu endilega samband við okkur á

netfangið kundenbetreuung@volkswagen.de

eða

í síma +49 800 - 86 55 79 24 36

Skrifa má okkur á póstfangið:

Volkswagen AG
Berliner Ring 2
38440 Wolfsburg
Þýskalandi